Okkur
03. maí 2008 klukkan 22:59
áskotnuðust miðar á Fm hátiðina áðan og buðum óléttu Elsu með okkur. Áður en haldið var á hátíð var farið á Santa Maria sem er tiltölulega nýr staður. Litill mexikói á gleðipillum afgreiddi okkur og menuin var fullur af skemmtilegum stafsetningavillum, til dæmis, hvað er fráskilin egg? Anyways.. maturinn er hræódyr og undarlegur en góður. Eg fekk mér tortilla með kjúkling og mole sósu sem er búinn til úr hundrað og einni tegund af chili og súkkulaði.
Fm hátíðin var helguð Pál Óskari og Sprengjuhöllin þökkuðu sérstaklega fyrir að Páll Óskar væri ekki hljómsveit. Kligja ársins fer til Mercedes club. Playback tape með fullu stelpunni á dansgolfi (hún var samt ekki full, en var holdgervingur allra drukknu stelpnanna á dansgólfinu á Hverfisbarnum) og manni sem getur aðeins státað af þvi að getað hnyklað brjostvöðvana var aðal málið hjá þeim.
Raggi var samt kruttlegur i turkís bláa Daler Mendhi gallanum sínum. dudududtatataaa!!!
Valborg Osp Á.Warén
