19. júní 2008 klukkan 15:43
eg er ordin margmidlunarhonnudur, hurrey!
Valborg Osp Á.Warén
16. júní 2008 klukkan 07:55
Því miður mun ég ekki geta haldið uppá afmælið mitt með ykkur,þar sem ég verð að heiman 17.júní,nánar tiltekið í Danmörku.
Virðingarfyllst
Vaaalborg
Valborg Osp Á.Warén
22. maí 2008 klukkan 22:55
Eg var að eignast lítinn frænda bara núna, tjekkið að barnanet.is/herrawaren
Valborg Osp Á.Warén
03. maí 2008 klukkan 22:59
áskotnuðust miðar á Fm hátiðina áðan og buðum óléttu Elsu með okkur. Áður en haldið var á hátíð var farið á Santa Maria sem er tiltölulega nýr staður. Litill mexikói á gleðipillum afgreiddi okkur og menuin var fullur af skemmtilegum stafsetningavillum, til dæmis, hvað er fráskilin egg? Anyways.. maturinn er hræódyr og undarlegur en góður. Eg fekk mér tortilla með kjúkling og mole sósu sem er búinn til úr hundrað og einni tegund af chili og súkkulaði.
Fm hátíðin var helguð Pál Óskari og Sprengjuhöllin þökkuðu sérstaklega fyrir að Páll Óskar væri ekki hljómsveit. Kligja ársins fer til Mercedes club. Playback tape með fullu stelpunni á dansgolfi (hún var samt ekki full, en var holdgervingur allra drukknu stelpnanna á dansgólfinu á Hverfisbarnum) og manni sem getur aðeins státað af þvi að getað hnyklað brjostvöðvana var aðal málið hjá þeim.
Raggi var samt kruttlegur i turkís bláa Daler Mendhi gallanum sínum. dudududtatataaa!!!
Valborg Osp Á.Warén
13. apríl 2008 klukkan 12:05
Okey eg er með netta táslu fobíu og fekk nett panic attack í gær þegar eg var að fletta monitor blaðinu í gær.
Hafiði seð tærnar a Unni Birnu?? jæks!!! hefur hun ekki heyrt um naglaklippur?!!
Tjekkið á nyjasta Monitor blaðinu blaðsiða 34, eða downlodið pdf skjalinu á monitor.is
Hófí og Linda Pé hefðu aldrei látið tærnar sínar fara i svona mikið óefni!
Valborg Osp Á.Warén
12. apríl 2008 klukkan 13:52
Það er bill buin að vera í bílastæðunni hjá Blundukoti síðan í júlí siðastliðnum, óhreyfður og ryðgandi útí rassgat. Með tímanum höfum við fylgst með ansi hreint áhugaverðum myglu fæðingum inni bilnum, til dæmis heilsaði snickers bitinn sem lá á mælaborðinu, mér um daginn, grænn og loðinn, túnfisksalatið sem liggur við hliðina á bitanum, hefur breyst í kæfu og sætinn i bílnum hafa breyst í iðandi myglusveppa orgíu. Þið haldið eflaust að ég sé að ýkja en nei, i gær var HEILBRIGÐISEFTIRLIT RÍKISINS mætt til þess að slá sóttkvi um bílinn og ætla að fjarlæga hann eftir að búið verður að ganga ur skugga um að jörðin i kringum hann sé ekki ónýt, varanleg mengun og hnigun jarðarinnar hefur ekki hafist herna i hlaðinu hja blúndukoti.
Um páskana var haldið L word þema i blúndukoti og Marcolino og hlunka G drivið mitt voru á overtime alla páskana að vinna að downlodi i sem bestu gæðum.
Eg verð að hrósa Ilene Chaiken hugmyndafræðingi þáttana fyrir brilljant hugmyndaflug. Max/Moria er eitt besta dæmið um það. Lessa sem vildi vera strákur, for næstum alla leið i þeim process, eignaðist kærustu, hun for eitthvert, Max byrjar með homma og ur verður einvhver allra skemmtilegasti kynhneigða kockteill sem ég veit um. Annað gott dæmi var kallinn sem upplifði sig sem samkynhneigða konu, ansans scnilld.
Valborg Osp Á.Warén
02. apríl 2008 klukkan 11:50
Þegar borgarstjori var spurður um alit sitt á ástandi miðbæjarins, svaraði kauði "Ástand miðborgarinnar er á ábyrgð síðasta meirihluta og úr verður bætt hið fyrsta". Okey hvaða meirihluta er hann að tala um? 100 daga meirihlutann sem hann sjálfur var í, eða meirihlutans þar á undan sem samanstóð af fólki sem borgarstjóri er í meirihluta núna? Hvort sem er, var kauði að skjota sig i fótinn, fótinn I tell U!
Annars er kronísk prumpulykt í bílnum okkar sem ég tek enganveginn ábyrgð á
Valborg Osp Á.Warén
29. mars 2008 klukkan 14:04
Í gær urðu mikil timamót í minu lífi, eiginlega má segja að þetta muni breyta lifi minu að eilífu. eg var að fara á fund fyrir vinnuna i eitt fyrirtæki hérna í bænum. Eg var i lobbýinu og bað um að tala við Jónas Jónsson, en einsog þið vitið þá dó Jón Jónsson í síðustu færslu. Allavegana, lobby konan tók upp símann og sagði" Jónas, það er kona komin til að hitta þig". Sjáiði orðið sem er tímamót? Kona, það er KONA komin að hitta þig, ekki stelpa, nei kona.
Valborg Osp Á.Warén
08. mars 2008 klukkan 20:34
Að sjálfsögðu hér!
Fyrir nokkrum vikum ætlaði ég að setja inn myndband með Dolly Parton til að sýna ykkur að ég væri farin að vinna nine to five, en tölvan neitaði alfarið að setja inn myndbandið svo að ég fór í sjálfskipaða fýlu við bloggið og hef ég nú alltaf þegar ég hef gengið framhjá tölvum gefið þeim fokkmerki.
Um daginn var ég að fara í eitt ónefnt fyrirtæki en á hurðinni stóð að þarna væri lokað í dag vegna jarðarfarar. Ég blótaði heil óskup enda hafði það tekið mig dá góðan tíma að finna fyrirtækið. Svo að morgunin eftir mætti ég hress uppí fyrirtækið og gekk að afgreiðlusborðinu
V: Góðan daginn
Sm:Góðan daginn, get ég aðstoðað þig?
V: Já, er Jón Jónson nokkuð upptekinn?ég þarf endilega að spjalla við hann.
Starfsmaðurinn horfir vandræðalega á mig, ræskir sig og segir
Sm: Jón? ehh...það var verið að jarða hann í gær.
Valborg Osp Á.Warén
25. janúar 2008 klukkan 11:43
Búin að taka próf....einkunn 9
Góða helgi!
Valborg Osp Á.Warén